152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[12:01]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Af því að hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson spurði hvort ég beri ekki virðingu fyrir sjálfum mér þá get ég svarað því til að ég ber virðingu fyrir öllum einstaklingum hér inni og mér þar með töldum, svo því sé svarað. Ég ber bæði virðingu og traust til Ríkisendurskoðunar sem okkar vettvangs til að fara ofan í kjölinn á svona málum. Ég heyri það sem hér er sagt, að fólk virðist ekki hafa trú á því að það séu nægar heimildir hjá ríkisendurskoðanda til að gera það. Ef það kemur í ljós í vinnu ríkisendurskoðanda að það þurfi frekari heimildir þá lýsi ég því aftur yfir, svo það sé algerlega skýrt: Ég mun ekki skorast undan því að styðja það að sett verði á fót sérstök rannsóknarnefnd til að kafa betur ofan í það vegna þess að ég tel afar mikilvægt að hér sé öllum steinum velt við. Ég tek heils hugar undir með hv. þingmanni að þetta snýst um traust og við skynjum það alveg á umræðunni hér, í samfélaginu og í fjölmiðlum að það ríkir ekki fullkomið traust um þetta.