um fundarstjórn.
Forseti. Hv. þingmaður talar um að hér ríki traust. Hér ríkir ekki traust til þess að þetta ferli hafi farið fram eins og það átti að fara fram. Og af hverju eru hv. þingflokksformenn stjórnarmeirihlutans allt í einu orðnir hræddir við að öllum steinum sé snúið við, hræddir við að verið sé að skoða hvort spilling hafi átt sér stað? Jú, hv. þingmenn vilja reyna að draga þetta mál eins lengi og hægt er þannig að vonandi gleymi þjóðin þessu öllu saman í næsta skandal sem þeir koma með, rétt eins og við erum búin að gleyma því hvað við þurftum að ræða hér fyrr í vikunni, um rasisma á Alþingi.