um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég er aðeins að velta þessu fyrir mér af því nú heyrist mér allir vera sammála um að þetta þurfi að skoða vel. Ágreiningurinn liggur um hver sé best til þess fallinn. Ég er aðeins að velkjast með tvennt. Í fyrsta lagi þetta: Hver metur það, ef niðurstaðan verður skýrsla Ríkisendurskoðunar, hvort hún sé nóg? Hver metur það? Er það meiri hlutinn hér inni? (Gripið fram í: Já) Halda menn að neðst í kafla skýrslu Ríkisendurskoðunar komi: Við höldum að það sé hægt að gera þetta betur? Eða hvað sjá menn fyrir sér? Hver metur þetta?
Síðan er það hitt álitamálið sem ég velti líka fyrir mér, aftur með tilvísan í meiri hlutann hér. Væntanlega verður gengið frá ráðningu nýs ríkisendurskoðanda áður en þessi skýrsla er unnin. Slík ráðning fer alltaf fram í skugga þessa verkefnis. (Gripið fram í: Já.) Hver verður valinn? Hver metur hvaða ríkisendurskoðandi er best til þess fallinn að vinna þessa skýrslu sem á að vera þannig að það þurfi ekki að fara í sérstaka rannsóknarnefnd Alþingis? Meiri hlutinn hér? Klárum þetta. Við viljum komast til botns í þessu. Við ætlum ekki að hafa þetta hangandi yfir okkur í 15 ár í viðbót. Sýnum að við getum rekið þetta samfélag. Rannsóknarnefnd, takk. (HallM: Það er ekkert traust sem ríkir um þetta ferli.)(Gripið fram í: Heyr, heyr.)