152. löggjafarþing — 65. fundur, 8. apr. 2022.
um fundarstjórn.
Forseti vill geta þess, af því að hér hefur verið vikið að kosningu ríkisendurskoðanda, að í auglýsingu sem var birt í byrjun mars, ef ég man rétt, þá var þess getið að Alþingi hygðist kjósa nýjan ríkisendurskoðanda í maímánuði og að farið er af stað lögbundið ferli sem byggir á reglum forsætisnefndar um framkvæmd þess. Þannig að það er sá tímarammi sem um er að ræða í því sambandi.