152. löggjafarþing — 65. fundur,  8. apr. 2022.

lengd þingfundar.

[12:07]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Áður en gengið er til atkvæða um afbrigði hyggst forseti láta fara fram atkvæðagreiðslu um lengd þingfundar sem gerð var grein fyrir hér í upphafi þingfundar. Forseti gerir að tillögu sinni að þingfundur geti staðið lengur í kvöld en þingsköp kveða á um og var óskað eftir atkvæðagreiðslu um þá tillögu.