152. löggjafarþing — 65. fundur, 8. apr. 2022.
afbrigði.
Svo háttar til um 3. dagskrármálið að þingmálinu var útbýtt eftir 1. apríl og ekki er liðinn sá frestur sem 3. mgr. 37. gr. þingskapa áskilur, þ.e. að svokölluð fimm daga regla. Auk þess eru ekki liðnar tvær nætur frá útbýtingu frumvarpsins, sbr. 1. mgr. 37. gr. þingskapa. Það þarf því að greiða atkvæði um hvort taka megi málið á dagskrá.