fjármálafyrirtæki o.fl.
Virðulegi forseti. Hér mæli ég fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um fjármálafyrirtæki og fleiri lögum. Þetta er efnismikið frumvarp eins og sjá má af þessari bók sem ég held hér á sem geymir frumvarpið, en því er fyrst og fremst ætlað að ljúka við innleiðingu tilskipunar 2013/36/ESB um aðgang að starfsemi lánastofnana og varfærniseftirlit með lánastofnunum og verðbréfafyrirtækjum og reglugerðar (ESB) nr. 575/2013 um varfærniskröfur að því er varðar lánastofnanir og verðbréfafyrirtæki. Saman mynda gerðirnar hryggjarstykkið í löggjöf Evrópusambandsins um varfærniskröfur til banka og annarra lánastofnana. Íslensk lög hafa verið löguð að þessum gerðum í áföngum frá árinu 2015 og hafa þær efnisreglur gerðanna sem mest hafa áhrif á Íslandi þegar verið innleiddar. Margvísleg veigaminni atriði standa þó út af sem til stendur að ljúka við að innleiða með samþykkt frumvarpsins. Ég ætla hér að gera grein fyrir helstu efnisbreytingum sem lagðar eru til í frumvarpinu.
Fjármálaeftirlitið fær nokkrar nýjar eftirlitsheimildir. Þeirra á meðal er heimild til að afturkalla starfsheimild fjármálafyrirtækis sem brýtur alvarlega eða ítrekað gegn peningaþvættisreglum og til að krefjast sölu á virkum eignarhlut í lánastofnun fari eigandi hans þannig með hlutinn að það sé líklegt til að skaða heilbrigðan og traustan rekstur stofnunarinnar. Enn fremur til að víkja framkvæmdastjóra eða stjórnarmanni í fjármálafyrirtæki frá uppfylli hann ekki hæfisskilyrði og til að leggja stjórnvaldssekt á þann sem hefur staðið að því að fyrirtæki fái starfsleyfi á grundvelli rangra upplýsinga eða á annan óeðlilegan hátt. Stjórnvaldssektir sem lagðar eru á einstaklinga munu geta numið allt að 800 millj. kr. í stað 65 millj. kr. Þá mun Fjármálaeftirlitið geta tímabundið svipt hluthafa atkvæðisrétti í fjármálafyrirtæki brjóti hann af sér og tímabundið bannað einstaklingi sem brýtur af sér að starfa hjá fjármálafyrirtæki.
Kveðið er nánar á um samstarf og upplýsingaskipti Fjármálaeftirlitsins við yfirvöld í öðrum aðildarríkjum samningsins um Evrópska efnahagssvæðið. Meðal annars er fjallað nánar um hvaða yfirvald fari með samstæðueftirlit með samstæðum sem starfa í fleiri en einu ríki, um eftirlit með mikilvægum útibúum og um hvernig brugðist skuli við brotum fyrirtækja sem starfa þvert á landamæri. Mælt er fyrir um heimild fjármálastofnana, þ.e. fyrirtækja sem hafa það að meginstarfsemi að afla eignarhluta eða sinna tiltekinni fjármálaþjónustu en eru ekki fjármálafyrirtæki, til að starfa þvert á landamæri Evrópska efnahagssvæðisins. Þá verður lánastofnunum með staðfestu í ríki utan Evrópska efnahagssvæðisins óheimilt að bjóða fram þjónustu hér á landi án þess að stofna hér útibú.
Kveðið er nánar á um stjórnarhætti fjármálafyrirtækja, þar á meðal skyldu kerfislega mikilvægra fjármálafyrirtækja til að starfrækja tilnefningarnefnd og starfskjaranefnd. Kaupaukareglur tilskipunarinnar, sem hafa að stórum hluta til verið teknar upp í reglur Seðlabanka Íslands, eru teknar upp í lög um fjármálafyrirtæki. Lagt er til að áfram verði við lýði nokkuð strangari takmarkanir á kaupaukum en tilskipunin áskilur, einkum með því að óheimilt verði að veita stjórnarmönnum og starfsmönnum sem starfa við áhættustýringu, innri endurskoðun eða regluvörslu kaupauka og með því að hámark kaupauka verði 25% af föstum kjörum.
Fjármálafyrirtækjum er gert að halda skrá um öll viðskipti sín og skjalfesta stefnur, kerfi og ferla og birta upplýsingar um starfsemi sína í einstökum ríkjum þar sem þau hafa starfsstöð.
Lagðar eru til breytingar á reglum um eiginfjárauka. Kveðið er á um að ákvörðun hlutfalls sveiflujöfnunarauka skuli taka mið af áhættu af vexti skulda. Almennt hámark eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á landsvísu hækkar úr 2% af áhættugrunni í 3%. Þá er mælt fyrir um nýjan eiginfjárauka fyrir kerfislega mikilvæg fjármálafyrirtæki á alþjóðavísu, en hann á ekki við um nein fyrirtæki sem eru starfandi á Íslandi eins og stendur.
Lagt er til að reglugerð (ESB) nr. 575/2013 verði lögfest, en meginefni hennar hefur hingað til verið innleitt með reglugerð ráðherra.
Loks er lagt til að lokið verði við innleiðingu starfskjaraákvæða í Evrópugerðum um rekstrarfélög verðbréfasjóða og rekstraraðila sérhæfðra sjóða.
Með frumvarpinu eru einnig lagðar til fáeinar efnislegar breytingar sem ekki byggjast beint á Evrópugerðum. Eignaleiga verður ekki leyfisskyld, en af lögum um fjármálafyrirtæki leiðir nú að fyrirtæki þurfa strangt til tekið starfsleyfi sem lánastofnanir til að hafa útleigu fasteigna eða lausafjár að meginstarfsemi þótt því hafi ekki verið fyllilega fylgt eftir í framkvæmd. Stuðst verður við skilgreiningu löggjafar um peningaþvætti og skráningu raunverulegra eigenda á hugtakinu raunverulegur eigandi í stað þess að setja fram sérskilgreiningu í lögum um fjármálafyrirtæki. Felld eru brott sérákvæði um óhæði endurskoðenda gagnvart fyrirtækjum á fjármálamarkaði með tilliti til nýlegrar lögfestingar Evrópugerðar sem tekur með ítarlegri hætti á sama efni. Þá er Byggðastofnun gerð undanþegin skyldu til að viðhalda eiginfjáraukum, til samræmis við óskir innviðaráðuneytisins sem fer með málefni stofnunarinnar.
Með frumvarpinu eru einnig lagðar til nokkrar breytingar sem er ætlað að skýra eða einfalda lögin eða lagfæra tæknilega annmarka.
Frumvarpið er umfangsmikið en áhrif af samþykkt þess eru þó talin minni en umfangið gefur til kynna. Þannig hafa þær efnisreglur Evrópugerðanna sem mest áhrif hafa á Íslandi, svo sem um eigið fé og laust fé, þegar verið teknar upp hér á landi, þótt ýmis veigaminni atriði standi út af. Heilt yfir er samþykkt frumvarpsins þó talin til þess fallin að treysta fjármálastöðugleika og eftirlit Fjármálaeftirlitsins. Lögfestingin getur heldur aukið stjórnsýslubyrði fyrirtækja á fjármálamarkaði, en á móti greiðir það fyrir viðskiptum íslenskra fjármálafyrirtækja við önnur ríki að reglur hér samræmist því sem gildir annars staðar á Evrópska efnahagssvæðinu.
Með samþykkt frumvarpsins fullnægir Ísland þjóðarréttarlegri skuldbindingu sinni til þess að innleiða að fullu Evrópugerðirnar, en tilskipun 2013/36/ESB og reglugerð (ESB) nr. 575/2013 var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið í byrjun árs 2020. Með samþykkt frumvarpsins fær Seðlabanki Íslands einnig lagaheimild til að innleiða fimmtán undirgerðir tilskipunarinnar og reglugerðarinnar sem hafa verið teknar upp í samninginn en hafa ekki verið innleiddar því til þess hefur skort lagaheimild hingað til. Eftirlitsstofnun EFTA hefur boðað höfðun máls á hendur Íslandi fyrir EFTA-dómstólnum vegna þess að þessar gerðir hafa ekki verið innleiddar. Brýnt er því að frumvarpið fái framgang á þessu þingi.
Virðulegi forseti. Ég legg til að frumvarpinu verði vísað til efnahags- og viðskiptanefndar og til 2. umr. að lokinni þessari umræðu.