hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.
Frú forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þingmanni traustið sem hún lýsti hér til umhverfis- og samgöngunefndar til að vinna vel úr þessu máli. Ég mun sannarlega ekki láta mitt eftir liggja þar innan borðs. Ég staldraði við eitt atriði í framsögu þingmannsins sem ég held að sé lykilatriði. Það er ekki fyrirtækjunum sjálfum til heilla að það sé einu sinni ásýnd þess að farið hafi verið fram hjá góðum reglum og venjum við leyfisveitingu. Þetta snýst nefnilega ekki bara um að standa vörð um umhverfið og standa vörð um þátttökurétt almennings, þetta snýst líka um það að fyrirtæki sitji við sama borð, t.d. að fyrirtækið fái ekki á sig það orð að það hafi fengið að fara fram hjá reglum af því að það þekkti rétta aðilann, en annað fyrirtæki við hliðina á því í sama rekstri fékk kannski ekki það sama. Þannig að við hljótum öll að vilja sníða allar hjáleiðir fram hjá eftirliti eins þröngt og hægt er. Ég hef áhyggjur af því að með því að festa þetta sem einhverja varanlega hjáleið séum við komin á miklu háskalegri slóðir en þær sem ESA rassskellti okkur fyrir. Það var nú ekkert frábært frumvarp heldur, en það snerist þó um afmarkað atvik í rauninni þar sem var alveg hægt að færa rök fyrir því (Forseti hringir.) að tap verðmæta væri í uppsiglingu. Það er ekki svo þegar við erum að setja almenn lög.