152. löggjafarþing — 67. fundur,  8. apr. 2022.

hollustuhættir og mengunarvarnir o.fl.

457. mál
[14:32]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Í samhengi við fundarstjórn og skipulag þingstarfanna almennt þá hef ég hingað til haldið að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu áhyggjur af því að það væri ekki nema vika fyrir þingstörf á milli tveggja vikna frís í tengslum við páska og tveggja vikna hlés vegna sveitarstjórnarkosninga. Að þessi vika yrði svona heldur knappur tími fyrir ríkisstjórnarflokkana að koma málum áfram og á færibandið, ef svo má segja. En nú blasir við að þessi vika er allt of langur tími, því að miðað við flótta þeirra frá umræðunni sem helst ætti að ræða um það að lenda þessu máli með einhverjum vitrænum hætti og miðað við með hvaða hætti hæstv. innviðaráðherra sinnti viðveru sinni hér eftir að upp kom mál fyrir viku síðan og það í hvaða furðulega farveg þessi umræða um rannsóknarnefnd er komin núna, þá velti ég því fyrir mér hvort hæstv. forseti ætli að þreifa á þingflokksformönnum stjórnarandstöðu um að fella niður þingfundi þessa viku sem eiga að vera á milli hléanna tveggja, hvort það hentaði ríkisstjórnarflokkunum betur.