152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

Varamenn taka þingsæti.

[15:02]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Birgir Þórarinsson, 9. þm. Suðurkjördæmis, verði fjarverandi á næstunni. Einnig hefur borist bréf frá Bjarna Jónssyni, 4. þm. Norðvesturkjördæmis, um að hann geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag taka því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Miðflokksins í Suðurkjördæmi, Erna Bjarnadóttir, og 1. varamaður á lista Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs í Norðvesturkjördæmi, Lilja Rafney Magnúsdóttir.

Lilja Rafney Magnúsdóttir hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.