152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:11]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseti vill geta þess að það er rétt að ýmis samskipti hafa átt sér stað vegna undirbúnings þinghalds í dag. Forseti hefur nálgast þetta út frá því að gefinn væri rúmur tími til að ræða þau mál sem fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna lögðu áherslu á en þó reynt að halda því þannig að það væri innan ramma þingskapa. Niðurstaðan er sú að hér verður flutt munnleg skýrsla þar sem farið er að ákvæðum þingskapa og ræðutími og möguleiki þingmanna til að tjá sig um þessi mál því ansi rúmur.