um fundarstjórn.
Herra forseti. Ég vil fyrst segja að ég treysti hæstv. forseta algerlega til að skipuleggja umræður hér á þingi innan ramma þingskapanna en kom hingað upp fyrst og fremst til að ítreka að fyrir utan það að vera til svara hér í dag hafði forseti þingsins samband við mig í morgun og sagði mér að ég ætti von á beiðni frá hv. þm. Halldóru Mogensen um þá þætti sem undir ráðherranefnd um efnahagsmál og umræðu á vettvangi ríkisstjórnar heyra. Ég veit ekki alveg hvernig beiðnin verður en ég hef upplýst þingmanninn um það að ég mun með gleði taka þá umræðu hvort heldur sem er á morgun eða hinn eftir því hvað hentar af því að ég hef fullan skilning á því að þingmenn vilji eiga við mig orðastað um þetta mál og verð að sjálfsögðu við því.