um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég mætti á Austurvöll á laugardaginn. Það var mikill hiti í fólki og frábærir ræðumenn. Ég vil þakka Jóhanni Páli Jóhannssyni fyrir skörulega ræðu. Ég sem hér stend er ein af þeim fjölmörgu sem stóðu vaktina fyrir 14 árum á Austurvelli og ásamt fleiru góðu fólki stóð ég fyrir borgarafundum í Háskólabíói og víðar. Ég finn að sala Íslandsbanka ýfir upp minningarnar frá hruninu og fólki líður hreinlega illa. Theodóra S. Þorsteinsdóttir hélt mjög tilfinningaþrungna ræðu á Austurvelli til minningar um föður sinn sem missti allt í hruninu. Þannig er líðanin hjá fjölda fólks. Því finnst hreinlega að verið sé að svíkja það. Það eru sömu aðilarnir sem koma aftur að kjötkötlunum og áttu þátt í hruninu og það veldur fólki hugarangri. Samkvæmt skoðanakönnunum vilja 80% þjóðarinnar ekki selja Íslandsbanka og það er ekki skrýtið að fólk sé reitt. Við verðum að hlusta á fólkið í landinu og skoða þessa sölu ofan í kjölinn og skipa rannsóknarnefnd Alþingis.