um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp til að taka undir þessa sjálfsögðu kröfu og langar aðeins að rökstyðja hvers vegna þetta er mikilvægt. Fyrir það fyrsta þá er sú ákvörðun að leggja niður Bankasýsluna tekin um páskana í einhvers konar skjóli og þar sem ekki náðist í ráðherra lengi. Eftirleikinn þekkjum við auðvitað öll. Þetta hefur verið gagnrýnt harðlega. Þeir sem svona haga sér og þeir sem á sama tíma tala gegn því að rannsóknarnefnd Alþingis geti tekið til starfa til að fara yfir þetta skulda auðvitað þingi og þjóð miklu ítarlegri upplýsingar heldur en hægt er að gefa hér í örstuttum fyrirspurnatíma eða styttri viðtölum í fjölmiðlum. Milliliðalaus samskipti við þingmenn eru algjör lágmarkskrafa. Ég heyri að hæstv. forsætisráðherra ætlar að koma hér á morgun og ég vil þá leggja það til að umræðutími sem þar verður gefinn verði eins rúmur og reglur leyfa. Síðan hlýtur sú krafa að vera uppi líka að hæstv. viðskiptaráðherra gefi þinginu sams konar skýrslu eða geri grein fyrir sinni afstöðu sem heldur betur vakti nú athygli í aðdraganda páska.