152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:21]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Mér finnst það ánægjulegt svo sem að það sé munnleg skýrsla fjármálaráðherra í dag, gefinn góður tími fyrir alla til að taka þátt í umræðunni og ég hvet fólk til að nýta þann rétt sinn og það tækifæri. Ég fagna því líka að hæstv. forsætisráðherra taki undir það að hafa sérstaka umræðu, sem er nú í aðeins styttra formi þar sem þingflokkar fá aðeins tvisvar sinnum tvær mínútur fyrir athugasemdir, fyrirkomulagið mætti alveg vera lengra þar. Þá er bara eftir, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson sagði, menningar- og viðskiptaráðherra sem er síðasti ráðherrann í ráðherranefnd um efnahagsmál sem vantar inn í dagskrá vikunnar. Það væri mjög heppilegt ef virðulegur forseti myndi upplýsa okkur um það hvort það muni standa til í vikunni, þ.e. að fá einnig umræðu með hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra, sem sér m.a. um fjárfestingu erlendra aðila í atvinnurekstri og skráningu raunverulegra eigenda.