152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:22]
Horfa

Bergþór Ólason (M):

Herra forseti. Ég ætla að tala á svipuðum nótum og hv. þm. Björn Leví Gunnarsson. Það er síðasti ráðherrann í þeirri ráðherranefnd sem nefnd hefur verið hér um efnahagsmál og endurskipulagningu fjármálakerfisins, hæstv. ráðherra menningar- og viðskiptamála, Lilja Dögg Alfreðsdóttir. Mig langar til að beina því til hæstv. forseta að hann hlutist til um það, og það verður auðvitað rætt á þessum fundi sem nefndur var hér sem á að eiga sér stað með þingflokksformönnum í lok dags, að hæstv. ráðherra menningar- og viðskiptamála, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, komi hér og eigi orðastað við okkur þingmenn sem þriðji ráðherrann sem á fast sæti í þessari nefnd. Um leið fagna ég því að hæstv. forsætisráðherra hafi upplýst að ráðherra komi til viðræðna við þingmenn á morgun undir hatti sérstakrar umræðu.