um fundarstjórn.
Herra forseti. Hv. þm. Halldóra Mogensen nefndi hér að ríkisstjórnin hefði átt farsakennd samskipti við minni hlutann. Mig langar bara til að benda á að ríkisstjórnin hefur líka átt farsakennd samskipti innbyrðis. Það er alveg ljóst að einhver ágreiningur er um þessi mál innan ríkisstjórnarinnar og það er ýmislegt sem þarf að skýra varðandi afstöðu ríkisstjórnarinnar sjálfrar. Ég tel alveg ljóst hvaða leik á að spila til að leysa þetta mál af hálfu ríkisstjórnarinnar. Það er sami leikur og er gjarnan spilaður sem er sá að ráðherrar firra sig ábyrgð á öllu því sem heyrir ekki beint undir þeirra ráðuneyti. Það er hins vegar ekki þannig að hæstv. forsætisráðherra geti gert það. Hæstv. forsætisráðherra er í forsæti fyrir þessari ríkisstjórn. Það er m.a. þess vegna sem við höfum kallað eftir umræðu við hæstv. forsætisráðherra um málið. Hæstv. forsætisráðherra hefur komið hingað upp og sagst að sjálfsögðu munu verða við beiðni um þátttöku í umræðum en við vitum að það verður á einhverjum mjög þröngum forsendum. Það er náttúrlega ekki svona (Forseti hringir.) sem þetta virkar. Við köllum eftir því að fá að ræða við hæstv. forsætisráðherra sem forsætismanneskju þessarar ríkisstjórnar.