um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ef það er eitthvað sem við ættum að vera búin að læra þá er það það að við þurfum að byggja upp traust í þjóðfélaginu. Það er ekki traust í þjóðfélaginu gagnvart t.d. þessari bankasölu núna. Það er heldur ekki traust gagnvart því að ekki sé farið í að gera almennilega rannsóknarskýrslu með því að skipa rannsóknarnefnd Alþingis, og ég ætla bara að leyfa mér að nefna Fjármálaeftirlitið, sem ég vil meina að fólk beri lítið sem ekkert traust til. Þarf þá ekki annað en að nefna bara alls konar ákvarðanir þeirra frá því fyrir hrun og hvernig þeir lögðu blessun sína yfir ólögleg lán og ég veit ekki hvað annað. Ekki hafa þeir neitt sýnt að þeir hafi lært nokkuð af því eftir hrun og í rauninni aldrei beitt sér með nokkrum hætti nema þá fyrir — þeir eru eins og skúffufyrirtæki fyrir fjármálafyrirtækin. Ég biðla til ríkisstjórnarinnar um að hætta þessum milliliðaleik og fara bara beint í almennilega rannsóknarskýrslu til þess að hægt sé að fara að byggja upp traust í þessu þjóðfélagi sem er í algeru núlli.