um fundarstjórn.
Herra forseti. Kannski er rétt að byrja á að óska fólki til hamingju með gleðilegt sumar, gaman að sjást á nýrri árstíð þótt við séum dálítið að syngja sama lagið. En það er líka af því að undanbrögð og fúsk ríkisstjórnarinnar spyrja ekki að tíma árs. Hér sagði hæstv. forsætisráðherra að að sjálfsögðu myndi hún ekki biðjast undan því að mæta í þingsal og standa fyrir máli sínu. En það er ekkert sjálfsagt, herra forseti. Það var beðið um slíkan fund á miðvikudaginn í síðustu viku. Það var beðið um það á miðvikudaginn að þessir ráðherrar mættu hér í sal, og helst tækjum við nýjan dag undir það, föstudaginn síðastliðinn, til að geta rætt þessi mál í góðu tómi án þess að raska starfsáætlun þingsins. Á það var ekki fallist. Það lá ekkert fyrir um dagskrá þessa dags, hvað þá þessarar viku fyrr en klukkan tíu í morgun. Það er ekkert sjálfsagt við það að hæstv. forsætisráðherra mæti í salinn og svari fyrir söluna á hlut ríkisins í Íslandsbanka (Forseti hringir.) vegna þess að síðustu fimm dagar hafa einkennst af undanbrögðum til þess að koma í veg fyrir það. Það er ekki fyrr en núna eftir fimm daga (Forseti hringir.) af tilraunum stjórnarandstöðunnar til að fá ráðherra í hús að allt í einu er það sjálfsagt.