152. löggjafarþing — 68. fundur, 25. apr. 2022.
um fundarstjórn.
Virðulegur forseti. Fyrst okkur liggur ekkert á að byrja að tala við ráðherrana um bankasölu, þrátt fyrir að hver þingmaður á fætur öðrum komi hér í pontu og lýsi yfir miklum áhuga á því, þá langaði mig til að hvetja hv. þingmenn til að virða tímamörk á ræðum, ekki síst kannski þá sem predika fyrir öðrum að virða reglurnar. Bara svona aðeins inn í daginn. [Hlátur í þingsal.]