152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:29]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér líður eins og ég þurfi að afsaka sjálfa mig, ef mig skyldi kalla, eftir orð hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur. En við erum auðvitað hér í þessu samtali í dag vegna þess sem ríkisstjórnin hefur sýnt okkur. Hún hafnaði kröfu um að þingið kæmi fyrr saman vegna bankasölu sem 83% þjóðarinnar eru ósátt við. Hún hafði þá um viku tíma ekki svarað fyrirspurnum fjölmiðla. Bankasýslan finnur tóninn sem ríkisstjórnin slær og mætir ekki á fund fjárlaganefndar í dag. Ríkisstjórnin talar um að það þurfi að velta við hverjum steini, sögðu þau í aðdraganda páskafrís, en luku umræðunni hér í þingsal á því að hafna öllum tillögum um rannsókn á þessu máli. Við erum í þessum sal í dag að ræða þessi mál, ekki vegna þess að við eigum í vandræðum með tímamörk heldur vegna þess að við eigum í vandræðum með það hvernig ríkisstjórnin fer með völd sín. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)