um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Það er allt rétt og satt sem hér var sagt hjá þeim sem á undan stóðu, að hér hafi verið og sé ríkur vilji til að velta við hverjum steini, svo það sé sagt í eitt skiptið enn. (Gripið fram í.) Hins vegar eru engin undanbrögð á því að fólk vilji svara hlutum. Hér kom fram beiðni á fundi í morgun um að hæstv. forsætisráðherra kæmi til umræðu og við því var orðið strax. Það er hægt að leggja fram aðra sérstaka beiðni vegna hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra ef því er að skipta, en það þarf þá bara að vinna þessar beiðnir og koma með þær fram. Það er algjörlega sjálfsagt mál að verða við því, eins og forsætisráðherra segir hér.