152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:33]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf):

Virðulegi forseti. „Það hefur ekkert verið ákveðið“, gargaði hæstv. fjármálaráðherra fram í fyrir hv. þm. Sigmari Guðmundssyni þegar hann minntist á niðurlagningu Bankasýslunnar. Svo rauk ráðherra út úr þingsal. Ég ætla bara að fá að lesa upp úr tilkynningu sem birtist á Stjórnarráðsvefnum í síðustu viku:

„Ríkisstjórnin hefur því ákveðið að leggja það til við Alþingi að Bankasýsla ríkisins verði lögð niður …“

Þegar þessi yfirlýsing birtist hafði ekki verið haldinn ríkisstjórnarfundur í 10, 11 daga þannig að við eigum t.d. heimtingu á því að vita hvenær þetta var ákveðið, á hvaða ríkisstjórnarfundi, og hvort (Gripið fram í.)— já, það kemur þá að því. Hér er reyndar sagt: „Þegar ný löggjöf liggur fyrir…“, eins og þeir séu búnir að ákveða að Alþingi ætli að ákveða þetta. En gott og vel, þetta varpar allt saman kannski ágætu ljósi á það hvers vegna við þurfum að eiga hérna samtal með öllum þeim ráðherrum ríkisstjórnarinnar sem hafa tjáð sig um þetta mál og með þeim ráðherrum (Forseti hringir.) sem sitja í ráðherranefnd um efnahagsmál.