um fundarstjórn.
Virðulegi forseti. Ég tel mjög mikilvægt að öll ríkisstjórnin taki þátt í þessum umræðum. Það er augljóst mál að núverandi ríkisstjórn, sem er ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur, brást trausti þjóðarinnar með sölunni á Íslandsbanka í mars. 83% af þjóðinni telja svo vera. Það er engan veginn hægt að segja það að salan á Íslandsbanka í mars hafi tekist að hluta og að hún sé lögleg. Mér finnst leiðinlegt að vera hér sem þingmaður og þurfa að halda því fram að eitthvað sé ólöglegt þegar það á undir dómstóla, en það er svo augljóst mál að lög sem Alþingi Íslendinga setti í kjölfar hrunsins árið 2012 hafi verið brotin, nánast allar meginreglur sem þar voru lagðar fram. Á því ber ríkisstjórnin ábyrgð, á því ber fjármálaráðherra ábyrgð, á því ber Bankasýslan ábyrgð. Framkoma Bankasýslunnar við fjárlaganefndina, þar sem ég sit, er með hreinum ólíkindum. Þetta snýst um virðingu þingsins og Alþingi Íslendinga verður að geta byggt upp alvörubankakerfi. (Forseti hringir.) Okkur hefur ekki tekist að gera það sem sjálfstæð þjóð. Núna reynir á það hvernig við tökum á afleiðingum þessarar sölu.