152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[15:36]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P):

Forseti. Hæstv. fjármálaráðherra kallar fram í að það sé Alþingi sem ákveður hvort Bankasýslan sé lögð niður eða ekki og vissulega er atkvæðagreiðsla í þingsal, sem m.a. ráðherrar taka þátt í, um hvort svo sé eða ekki. En það er nú einu sinni þannig fyrirkomulag hérna að það er ríkisstjórnin sem setur stefnuna. Ríkisstjórnarflokkarnir ákveða hvað á að leggja fyrir þingið og reyna að sannfæra þingið um hvað sé góð hugmynd og hvað ekki. Það er ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja niður Bankasýsluna. Það er hugmynd hennar. Hvort það raungerist síðan er allt annað mál en þetta er það sem ríkisstjórnin er búin að ákveða — eða hvað? Var ríkisstjórnarfundur? Við vitum það ekki, líklega ekki, heldur voru það þessir þrír forystumenn flokkanna sem ákváðu þetta. Það er ákvörðun. Hvað Alþingi gerir seinna með atkvæðagreiðslu sinni er annað mál, þegar búið er að fara yfir það og yfir umsagnir og ýmislegt svoleiðis. Við erum samt að tala um ákvörðun sem formenn ríkisstjórnarflokkanna hafa tekið. (Forseti hringir.) Ef hæstv. fjármálaráðherra vildi vinsamlegast hætta þessum orðhengilshætti væri það vel þegið. (Gripið fram í: … er ekki með orðhengilshátt.)