152. löggjafarþing — 68. fundur, 25. apr. 2022.
Varamenn taka þingsæti.
Í dag, mánudaginn 25. apríl, barst bréf frá formanni þingflokks Pírata, Halldóru Mogensen, um að Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, 7. þm. Suðvest., verði fjarverandi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Eva Sjöfn Helgadóttir. Hún hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðin velkomin til starfa að nýju.