söluferli Íslandsbanka.
Herra forseti. Í Sprengisandi í gær sagði hæstv. fjármálaráðherra að ekkert hefði komið á óvart í söluferli Íslandsbanka. Það hefði verið algjörlega fyrirséð að einhverjir myndu selja strax aftur með hagnaði. Er hæstv. forsætisráðherra sammála þessu? Var þetta fyrirséð? Og hvers vegna var þá útboðinu hagað þannig að það miðaðist við fáa langtímafjárfesta? Það eru fleiri spurningar sem vakna. Hafi hæstv. fjármálaráðherra farið eftir lögum frá 2012 um sölumeðferð eignarhluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum þá skipulagði hann sölu á hlutum í Íslandsbanka í samráði við Bankasýsluna, fór yfir tilboðin og samþykkti að selja í lokuðu útboði aðilum sem sumir voru honum nákomnir, öðrum sem seint verða sagðir uppfylla skilyrði um traust og eiginleika þess sem við krefjumst af eigendum banka og enn aðrir kaupendur voru starfsmenn sem áttu sjálfir að sjá um sölu en notuðu tækifærið til að hagnast sjálfir. Þessir handvöldu aðilar sem fengu að kaupa í lokuðu útboði með afslætti seldu síðan margir nýkeyptan hlut sinn með miklum hagnaði. Hafi fjármálaráðherra ekki starfað í samræmi við fyrrgreind lög og ekkert fylgst með þessu söluferli þá er það vanræksla sem fer í bága við lög um ráðherraábyrgð.
Þá vaknar spurningin, herra forseti, sem mig langar að beina til hæstv. forsætisráðherra: Hafi fjármálaráðherra tekið virkan þátt í þessu ferli, hefur hann a.m.k. gerst sekur um brot á siðareglum og frændhygli sem væri afsagnarsök í öllum löndum í kringum okkur. Hafi fjármálaráðherra hins vegar ekki verið virkur í þessu ferli er hann sekur um vanrækslu á starfsskyldum sínum. Spurningin er: Hvort er hann sekur um spillingu eða vanrækslu?