152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

söluferli Íslandsbanka.

[15:41]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Hv. þingmaður spyr hér út í túlkun laga um Bankasýsluna annars vegar og hins vegar um meðferð á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum þar sem Bankasýslunni er með lögum falið að annast framkvæmd sölunnar. Um það hefur verið rætt hvort það þýði í raun að hæstv. fjármálaráðherra beri að fara yfir hvert og eitt tilboð, það er það sem hv. þingmaður er hér að spyrja um, og samþykkja eða hafna hverju og einu tilboði. Samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef þá fékk hæstv. fjármálaráðherra lögum samkvæmt rökstutt mat frá Bankasýslunni að kvöldi útboðsdagsins með upplýsingum um lokaverð, útboðsstærð og úthlutun þar sem óskað er eftir heimild ráðherra til að ráðast í endanlega sölu eignarhluta og úthlutun til bjóðenda og í því felist þá að forstjóra stofnunarinnar er veitt umboð til að undirrita fyrir hönd ríkisins viðeigandi viðauka við sölusamning og gefa fyrirmæli um framsal hluta við uppgjör viðskipta svo unnt sé að ljúka sölumeðferðinni.

Þetta sama kvöld var fallist á tillöguna af hálfu hæstv. ráðherra með svarbréfi. Þar er vitnað til 4. gr. laga nr. 155/2012, þar sem segir að Bankasýslan annist sölumeðferð eignarhluta fyrir hönd ríkisins í samræmi við ákvörðun ráðherra. Þegar tilboð í eignarhluti liggja fyrir skal Bankasýsla skila ráðherra rökstuddu mati á þeim. Þannig að ráðherra tekur ákvörðun um hvort tilboð skuli samþykkt eða þeim hafnað og undirritar samninga. Það hefur ekki verið túlkun ríkisins að þetta þýði að ráðherra beri að fara yfir tilboð einstakra aðila til að velja og hafna og vinnur væntanlega gegn tilgangi þess ferlis sem er ætlað að hafa ferlið í sjálfstæðri stofnun. Við getum litið aftur á fyrsta hluta þegar 24.000 aðilar keyptu í bankanum. Er það mat fólks að ráðherra hefði átt að samþykkja hvert og eitt af þessum 24.000 tilboðum? Sú spurning kom ekki upp. Þá er spurning hvort þetta snúist ekki í raun og veru um það að ráðherra hafi falið Bankasýslunni að annast þennan endanlega frágang vegna sölunnar.