söluferli Íslandsbanka.
Herra forseti. Ég var ekkert endilega að tala um að hæstv. fjármálaráðherra hefði átt að kafa ofan í hverja einstaka kennitölu. Hæstv. forsætisráðherra hefur sjálf sagt að salan hafi ekki verið í samræmi við væntingar um trausta langtímafjárfesta. Í ljós kom að það voru rúmlega 200 tilboð sem voru samþykkt og það hefði strax átt að kveikja viðvörunarbjöllur um að ekki væri verið að ræða um fáa langtímafjárfesta. Hæstv. fjármálaráðherra hefur fullyrt að hann hafi ekkert skoðað málið. Er það þá ekki vanræksla af ráðherra að kynna sér a.m.k. ekki hvort grundvallaratriðum leiðarinnar sem farin var væri fylgt áður en hann kvittaði upp á niðurstöðu útboðsins?