152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

söluferli Íslandsbanka.

[15:44]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg):

Herra forseti. Það voru ákveðin skilyrði sett fram í gögnum málsins sem bæði voru kynnt Alþingi og ráðherranefnd um efnahagsmál þar sem kveðið var á um að hæfir fjárfestar væru þeir sem skyldu taka þátt í þessu útboði. Þær skilgreiningar liggja fyrir í lögum. Eitt af því sem er til skoðunar núna er hvort þessi skilyrði hafi verið uppfyllt í öllum tilvikum. Hv. þingmaður spyr: Átti ráðherra að fara yfir það og kanna í raun og veru í hverju og einu tilviki hvort þessir aðilar (Gripið fram í.) uppfylltu skilyrðin? Væntanlega er það hlutverk Bankasýslu (Gripið fram í.) — nei, ókei. Væntanlega er það hlutverk Bankasýslu ríkisins að tryggja það og þeirra söluráðgjafa sem Bankasýslan ræður til starfa til að sinna þessu, að skilyrði laganna séu uppfyllt og lýsingunni sé fylgt. Og af því að hv. þingmaður vitnar í orð mín um að þetta hafi ekki mætt væntingum mínum þá bara stend ég algerlega við það. Ég hafði þær væntingar að aukið gagnsæi yrði tryggt í þessu. Ég hafði væntingar um að þessi listi (Forseti hringir.) kaupenda yrði birtur og það kom mér verulega á óvart þegar Bankasýslan hafnaði því. Það fannst mér ekki standast þær kröfur sem við setjum í lögum, frá 2012, um að gagnsæi (Forseti hringir.) skuli vera eitt af meginsjónarmiðum í þessu máli.