152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

ábyrgð ráðherra við lokað útboð.

[15:51]
Horfa

Halldóra Mogensen (P):

Frú forseti. Þetta var sannarlega mjög óundirbúin fyrirspurn. Ég biðst afsökunar ef það var ruglingur á því og þakka ráðherra fyrir að bregðast við á þennan hátt. En mig langar til þess að byrja á tengslum Bjarna Benediktssonar, hæstv. fjármálaráðherra, inn í íslenskt viðskiptalíf sem eru það víðtæk og marglaga að hann hlýtur að hafa vitað hverja hann myndi finna á tilboðslistanum. Það bara hlýtur að vera. Hann hlýtur að hafa vitað að hann myndi finna gamla kunningja, jafnvel ættingja, á listanum og að ef hann hefði kannað tilboðin til hlítar hefði kannski komið í ljós að hann væri vanhæfur til að taka ákvörðun um að samþykkja eða hafna tilboðunum. Hans eina undankomuleið var að halda fyrir nefið, kvitta upp á forsíðuna og vona það besta. Ég sé það alla vega fyrir mér þannig. Sjálfstæðisflokkurinn er nefnilega holdgervingur eitraða kokteilsins. Sjálfstæðisflokkurinn var barþjónninn sem hristi þetta allt saman. Vinstri græn voru einu sinni sammála þessu, það veit ég. Svo sprakk þetta allt saman framan í okkur og það lítur út fyrir að ballið sé rétt að byrja á ný. (Forseti hringir.) Þannig að ég spyr hæstv. forsætisráðherra: Hvaða ábyrgð ber hún (Forseti hringir.) á að hafa komið þessum flokki til valda og komið þessum manni í fjármálaráðuneytið?