ábyrgð ráðherra við lokað útboð.
Herra forseti. Hér er um að ræða ákvörðun sem er tekin, það eru ákveðin lög um það hvernig skuli taka þá ákvörðun. Það er ákveðin stofnun sem var sett á laggirnar með lögum sem ber að gera tillögur til ráðherra og gerir slíka tillögu um þetta ferli. Ætlunin með lögunum er að tryggja ákveðna fjarlægð milli hins pólitíska valds og síðan þess framkvæmdaraðila sem fer með söluna. Það var hugsunin á bak við það. Sömuleiðis var ákveðið á sínum tíma að einstakar sölur einstakra hluta skyldu ekki bornar undir Alþingi nema með þeim hætti að óska skyldi umsagnar frá nefndum þingsins. Ég ætla að leyfa mér að segja það að ég hef efasemdir um að það hafi reynst vænleg leið. Ég tel að Alþingi eigi að hafa meiri aðkomu að þessu máli. Ég held að þegar við horfum á reynsluna og drögum af henni lærdóm þá sé það ekki óeðlileg hugmynd, eins og ég hef viðrað, að Alþingi samþykki til að mynda þegar ákveðið er að selja einstaka hluta og kafi þá ofan í málin. (Forseti hringir.) Ég vil hins vegar minna á það að ætlunin með lögunum var að hafa þessa fjarlægð milli hins pólitíska valds og framkvæmdaraðilans. (Forseti hringir.) Það var ætlunin og þá verður kakan ekki bæði geymd og borðuð í þessum efnum.