152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

Bankasýslan.

[15:55]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Hæstv. forseti. Hæstv. fjármálaráðherra hefur ítrekað lýst yfir ánægju sinni með hvernig tekist hefur til við sölu á hlut ríkisins í Íslandsbanka. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hvers vegna ákvað hann þá að bregðast við með því að leggja til að Bankasýslan yrði lögð af, hafi hann verið svo ánægður með hvernig til tókst? Hvers vegna var þá ákveðið að bregðast við gagnrýni á söluna með því að leggja niður Bankasýsluna?

Í öðru lagi spyr ég hæstv. ráðherra hvort þessi áform hafi verið rædd í ríkisstjórn og kynnt í ráðherranefnd um efnahagsmál.

Í þriðja lagi spyr ég: Hvað tekur við? Hvað tekur við þegar þessi áform ganga eftir og Bankasýslan verður lögð niður? Varla getur verið að þeir ráðherrar sem tóku þessa ákvörðun um þessi áform hafi ekki haft neinar hugmyndir um hvað ætti að taka við. Verður stofnuð ný Bankasýsla til að viðhalda þessum svokölluðu armslengdarsjónarmiðum? Verður verkefnið fært inn á borð ríkisstjórnarinnar? Hvað tekur við? Við hljótum að æskja svara um það í ljósi þessarar skyndilegu en afdráttarlausu yfirlýsingar frá a.m.k. þremur hæstv. ráðherrum.

Spurningarnar eru þessar, herra forseti: Í fyrsta lagi: Hvers vegna brást hæstv. ráðherra við með því að leggja til að Bankasýslan yrði aflögð, hafandi verið svo ánægður með framkvæmdina? Í öðru lagi: Var þetta kynnt í ríkisstjórn og ráðherranefnd um efnahagsmál? Og í þriðja lagi: Hvað tekur við?