Bankasýslan.
Herra forseti. Hæstv. ráðherra vannst ekki tími til að svara spurningunum og því ítreka ég þær nú, því að þetta hljómar eins og þrír hæstv. ráðherrar hafi hist á fundi um páskana og sagt: Eitthvað þurfum við að gera. Þetta er eitthvað, gerum það.
Það liggja ekki fyrir áform um hvað eigi að taka við. Því spyr ég hæstv. ráðherra aftur: Var þetta kynnt á ríkisstjórnarfundi? Var þetta rætt í ráðherranefnd um efnahagsmál?
Ég spyr líka aftur: Liggur eitthvað fyrir um hvað eigi að taka við eða voru þetta bara fálmkennd viðbrögð til að bregðast við gagnrýni á söluna? Og gefist hæstv. ráðherra tími til, sem ætti að gefast því að ég ítrekaði hér áðan gamlar spurningar, þá mætti hann gjarnan svara því hvað honum finnst um kostnaðinn við söluna, ekki síðasta áfanga, því að hæstv. ráðherra hefur gagnrýnt kostnaðinn við síðasta áfanga. Man hæstv. ráðherra hvað fyrri áfanginn kostaði og er hann tilbúinn til að gagnrýna það líka?