Bankasýslan.
Virðulegi forseti. Varðandi fyrirkomulag á sölu hluta ríkisins í fjármálafyrirtækjum: Já, við höfum rætt það í ríkisstjórn, ég hef rætt það í ríkisstjórn. Ég hef meira að segja lagt til við Alþingi hér á fyrri þingum að gera breytingar á því. Og varðandi ólíka möguleika til þess að losa um eignarhald ríkisins á fjármálafyrirtækjum þá hefur það borið á góma í ráðherranefnd. En alveg eins og við höfum ekki lagt til við Alþingi útfærða tillögu þá höfum við ekki heldur rætt hana í ríkisstjórn eða í ráðherranefnd. En málið hefur borið á góma.
Þegar spurt er um nákvæmlega hvernig við munum gera þetta — það sem við munum gera er að við munum áfram tryggja að ekki verði sendir stjórnmálamenn inn í stjórnir ríkisbanka eða fyrir hönd ríkisins inn í banka þar sem ríkið fer með eignarhald. Við munum áfram tryggja fagmennsku í því hvernig staðið verður að skipan í stjórnir, alveg eins og Bankasýslan hefur gert ágætlega samkvæmt lögum. Síðan munum við hins vegar taka til skoðunar alla aðra kosti en þá sem felast í leið Bankasýslunnar til að losa um eignarhluti og virða fyrir okkur og koma með tillögu inn í þingið.