fyrirkomulag við sölu á hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Já, það hefur um fátt verið meira rætt að undanförnu en sölu á eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka. Ég vil af því tilefni rifja upp að Hagsmunasamtök heimilanna hafa ítrekað, allt frá því að þær hugmyndir komust fyrst til umræðu, lagst gegn hugmyndum um einkavæðingu þeirra banka sem hafa verið í eigu ríkisins og það hefur Flokkur fólksins líka gert. Flokkur fólksins lagði fram breytingartillögu við fjárlögin í desember um að fella heimild til sölunnar brott en hún var felld af meiri hlutanum og einungis samflokksmenn mínir í Flokki fólksins greiddu atkvæði með henni.
Bankahrunið 2008 og hið stórfellda tjón sem það olli heimilum landsins hefur ekki verið gert upp og það er stór ástæða fyrir þeim sterku viðbrögðum sem nú heyrast frá almenningi við nýafstaðinni sölu. Meðal kaupenda eru þekktar persónur og leikendur frá fyrri einkavæðingu og hruninu sem af henni leiddi. Í stað þess að ráðast beint í einkavæðingu þarf fyrst að gera upp hrunið, aðskilja viðskipta- og fjárfestingarbanka og skoða af alvöru hvernig skuli endurskipuleggja fjármálakerfið, svo sem með því að breyta einum ríkisbanka í samfélagsbanka. Ríkisstjórnin hefur virt þessi sjónarmið að vettugi og þess í stað aðeins hlustað á sjónarmið markaðarins og fjármagnseigenda um mikilvægi einkavæðingar.
Ég vil því spyrja hæstv. fjármála- og efnahagsráðherra, með hliðsjón af nýafstaðinni sölu í hlut ríkisins á Íslandsbanka, hvort ekki sé orðið löngu tímabært að hlusta á önnur sjónarmið en fjármagnsafla um hvernig haga skuli framtíðarfyrirkomulagi fjármálakerfisins. Er ekki bara kominn tími til að hlusta á sjónarmið þeirra neytenda sem hafa raunverulega reynslu af viðskiptum við þetta fjármálakerfi, ég tala nú ekki um þá sem lentu í mulningsvélum þeirra eftir hrun? Er ekki löngu kominn tími til að hlusta á sjónarmið almennings eða snýst stefna ríkisstjórnarinnar fyrst og fremst um þjónkun við fjármagnsöflin á kostnað almennings?