152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

fyrirkomulag við sölu á hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum.

[16:04]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég átta mig ekki alveg á því hvert hv. þingmaður er að fara varðandi söluna á Íslandsbanka en hér er komið inn á það að við þurfum að breyta bönkunum í þágu almennings. Ég hef sagt það margoft hér í þinginu að það er líklega ein öruggasta leiðin til að draga hressilega úr virði bankanna í höndum ríkisins. Það er auðvitað hægt að hætta að reka hagnaðardrifna banka og segja sem svo að við ætlum að reka hér óhagnaðardrifin fjármálafyrirtæki. Það er auðvitað hægt að gera það. En þá er alveg öruggt að virði bankans í höndum ríkisins mun verða að litlu. Þá myndi það væntanlega, ég ætla að leyfa mér að halda því fram, birtast almenningi með einhverjum öðrum hætti, en þessi aðferð hefur víða verið reynd og gengur almennt mjög illa. Það sem við erum að gera hér er að koma evrópsku skipulagi á lög og reglur fyrir fjármálafyrirtæki og það hefur gengið vel. Við erum búnir að umbylta regluverkinu fyrir fjármálafyrirtæki á Íslandi á síðastliðnum áratug alveg eins og gert hefur verið í Evrópu. Áhætta almennings af kerfinu er fjarri því að vera samanburðarhæf við það sem átti við hér fyrir hrun. Sömuleiðis verð ég að halda því til haga að kjör almennings hafa aldrei verið betri og reyndar, af því að hv. þingmaður segir hér að það eigi enn eftir að gera upp hrunið, þá hefur staða heimilanna heldur aldrei verið betri frá hruni. Hún er orðin einhver sú besta sem við höfum haft nokkurn tímann. Skuldir heimilanna, kaupmáttur heimilanna, eignastaðan, fjöldi þeirra sem eru að kaupa sér í fyrsta sinn fasteign, kjör, lánakjör — allir þessir þættir hafa ekki áður staðið betur en einmitt í dag. Þess vegna skýtur það dálítið skökku við þegar hv. þingmaður kemur hingað og segir: Það sem er að er að við eigum alveg eftir að taka til eftir hrunið. Mér finnst þetta vera einhver grundvallarmisskilningur á því í hverju við höfum varið tímanum síðastliðinn áratug með því að leiðrétta skuldastöðu heimilanna, með ýmiss konar aðgerðum og með því að laga umhverfið, efnahagsástandið, regluverkið (Forseti hringir.) og síðan að koma aftur á samkeppnishæfu umhverfi fjármálafyrirtækja sem losar ríkið úr þeim rekstri.