fyrirkomulag við sölu á hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Það verður að segjast að hæstv. fjármálaráðherra sýnir hér alveg fádæma vanþekkingu á því sem fólk gekk í gegnum eftir hrun. Það er ekkert óeðlilegt að 14 árum síðar hafi orðið framfarir á Íslandi en það breytir ekki þeirri staðreynd að hér voru a.m.k. 15.000 fjölskyldur sem misstu heimili sín. Það hefur aldrei fengist almennilega viðurkennt, hvað þá að litið hafi verið til þess að það þurfi að bæta með einhverjum hætti. Það er voða gott að búa í bergmálshelli. Það er rosalega gott að tala bara við þá sem manni hentar og eru manni sammála. Þannig leið mér þegar ég hlustaði á alla þessa sérfræðinga sem komu. Það voru fjármálaráðuneytið, Bankasýslan, Kauphöllin. Þau komu og töluðu eins og þau væru partur af einhverjum sértrúarsöfnuði þar sem væri bara ein mantra: Selja, selja, selja. Ég er formaður samtaka sem eru eini aðilinn á Íslandi sem gætir að réttindum (Forseti hringir.) neytenda á fjármálamarkaði og við erum aldrei (Forseti hringir.) kölluð til og spurð hvað eigi að gera, hvað komi neytendum vel eða hvernig — það er bara horft á þetta út frá hagsmunum fjármagnseigenda. Alltaf.