fyrirkomulag við sölu á hlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum.
Virðulegi forseti. Já, ég er sakaður um ýmislegt í dag og nú er ég sakaður um að hafa enga þekkingu á því hvað gerðist hér á eftirhrunsárunum. Þó hef ég setið hér á þingi allan þann tíma (Gripið fram í.) og verið fjármálaráðherra nær óslitið frá 2013. Eitt það fyrsta sem við gerðum í ríkisstjórn minni og hv. þm. Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar var að fara í meiri háttar efnahagslega aðgerð til að leiðrétta skuldastöðu heimilanna einmitt vegna þess sem hv. þingmaður var að nefna, (Gripið fram í.) að skuldastaða heimilanna var orðið efnahagslegt vandamál. Til þess tókum við úr ríkissjóði rúmlega 80 milljarða, til að laga stöðu heimilanna. Því til viðbótar fórum við í skattalegar ráðstafanir sem hafa skilað langt yfir 100 milljörðum inn á skuldirnar. Þannig að skuldastaða heimilanna og staða heimilanna gagnvart fjármálafyrirtækjunum í landinu hefur ekki áður verið betri. Síðan er auðvitað í framhaldi af þessu vel hægt að halda því fram að ég hafi ekki hugmynd um það hvernig staða heimilanna er eða hvernig hún hafi þróast á þessum tíma en ég ætla að fá að andmæla því. (Gripið fram í.)