Hugsanleg innganga Svíþjóðar og Finnlands í NATO.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Eins og fram hefur komið í máli hæstv. utanríkisráðherra þá munu íslensk stjórnvöld styðja umsóknir Finnlands og Svíþjóðar ef þau ákveða að sækja um aðild að Atlantshafsbandalaginu og eins og hv. þingmaður nefndi þá fer mikil umræða fram í báðum þessum löndum. Þessi ríki eru auðvitað nú þegar mjög náin samstarfsríki Atlantshafsbandalagsins. Leiðtogar þeirra hafa iðulega setið leiðtogafundi. Þau hafa tekið þátt í bæði norrænu og norðurevrópsku öryggis- og varnarsamstarfi, þannig að þau hafa hingað til verið í hópi okkar nánustu samstarfsaðila á þessu sviði. Fari svo að niðurstaða þessara ríkja, þeirra þjóðþinga og þeirra ríkisstjórna, verði sú að sækja um þá mun Ísland styðja þá ákvörðun. Ég átti óformlegan fund með forsætisráðherra Finnlands nú á dögunum þar sem ég áréttaði það að við myndum greiða þá götu á vettvangi þingsins, því að það er þannig þegar kemur að slíkum málum að það þarf að samþykkja þingsályktunartillögu um staðfestingu á viðbótarsamningi Norður-Atlantshafsbandalagsins um aðild einstakra ríkja þannig að það þarf að fara í gegnum þjóðþingin. Það skiptir auðvitað máli að það sé þá tekið fyrir og ég veit að utanríkisráðuneytið er tilbúið til að bregðast við því ef á þarf að halda.