152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

hugsanleg innganga Svíþjóðar og Finnlands í NATO.

[16:20]
Horfa

Diljá Mist Einarsdóttir (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svörin. Það er gott að heyra hér í þinginu staðfestingu á því að íslensk stjórnvöld muni styðja aðildarumsókn Finna og Svía, þessara nánustu bandalagsþjóða okkar, komi til þess að þær sæki um aðild að NATO. Núna er þörf á fullum stuðningi og samstöðu af okkar hendi. Þessi viðsnúningur þessara vinaþjóða okkar er líka fullkomlega skiljanlegur í ljósi innrásar Rússlands í fullvalda evrópskt ríki. Það hefur eflaust mörgum orðið það ljóst að þeir eru ekki í því skjóli sem þeir vildu vera. Pútín hefur þegar haft í hótunum í allar áttir og það má búast við því að aðildarumsóknir Finna og Svía verði ekki látnar óátaldar verði af þeim.

Mig langar mig því að spyrja hæstv. forsætisráðherra hvort íslensk stjórnvöld hafi hugleitt og séum viðbúin því að verða fyrir barðinu á hörðum viðbrögðum og refsiaðgerðum Pútíns fyrir það eitt að styðja við varnarfyrirkomulag vinaþjóða okkar.