hugsanleg innganga Svíþjóðar og Finnlands í NATO.
Frú forseti. Við höfum í gegnum þennan tíma, eftir innrás Rússa í Úkraínu, fundað nokkrum sinnum á vettvangi þjóðaröryggisráðs og reynt að taka stöðuna eftir því sem þessari innrás og þessu hryllilega stríði hefur undið fram og um leið reynt að leggja mat á áhrifin á Ísland. Það stendur yfir vinna við að uppfæra mat okkar á ástandi og horfum í öryggis- og varnarmálum og ég vonast til þess að slíkt uppfært mat muni liggja fyrir á vormánuðum. Það tengist auðvitað því sem hv. þingmaður spyr um, hvaða viðbrögðum við getum átt von á. Síðan höfum við tekið þá ákvörðun að leggja til að auka sérstaklega framlög til netöryggismála því að við sjáum að gríðarlegt álag er á þá innviði sem við eigum, við sjáum aukið álag í tengslum við þessa innrás. Þetta er risastórt mál og mjög ánægjulegt ef við gætum aukið framlag okkar til þessa. Þarna gætum við lagt eitthvað raunhæft af mörkum þegar kemur að öryggis- og varnarmálum. Þannig að þessi mál hafa verið til umræðu og skoðunar á vettvangi þjóðaröryggisráðs.