um fundarstjórn.
Frú forseti. Mér finnst að við getum eiginlega ekki farið frá þessari umræðu sem var hér áðan öðruvísi en að ramma það inn — og það er ágætt fyrir hæstv. forseta að hafa það í huga — að ég fæ ekki betur séð en að hæstv. forsætisráðherra hafi hreinlega farið með rangt mál í ræðustól Alþingis rétt áðan. Þetta er þannig að þó að formenn ríkisstjórnarflokkanna séu talsmenn ríkisstjórnar geta þeir ekki sagst tala fyrir hönd ríkisstjórnarinnar allrar út frá formlegri ákvörðun nema sú ákvörðun hafi verið tekin formlega á ríkisstjórnarfundi. Þetta gerist ekki í SMS á milli manna um páskahelgi. Þetta gerist ekki á Teams eða eftir einhverjum öðrum óformlegri samskiptaleiðum. Ef ríkisstjórnin ákveður eitthvað, ef ríkisstjórnin ákveður að leggja það til við Alþingi að leggja Bankasýsluna niður, þarf ríkisstjórnin að hittast til að taka þá ákvörðun. Það er algerlega skýrt. Formenn stjórnarflokkanna geta ekki tekið sér það vald án þess að tala við aðra ráðherra (Forseti hringir.) og ákveða með formlegum hætti að eitthvað sé gert í nafni ríkisstjórnarinnar allrar. Þetta skiptir verulegu máli og mér finnst ekki góður bragur á því, þegar við erum að fara að ræða bankasöluna, að verulega sé hallað máli úr ræðustól Alþingis.