um fundarstjórn.
Forseti. Já, ég tek undir með hv. þm. Sigmari Guðmundssyni, þessi ákvörðun um að leggja niður Bankasýsluna sem stóð til hvort eð er, en að gera það núna allt í einu sem einhver viðbrögð við þessari bankasölu lyktar voða mikið af einhverju skítamixi, afsakið orðbragðið, forseti. Það er alltaf verið að tala um einhverja armslengd en samt er armslengdin ekki nægilega mikil til að ríkisstjórnin geti einhvern veginn farið að þvælast fyrir sjálfsagðri rannsókn sem ætti að vera á forsendum þingsins, heldur er bara að reyna að bregðast við og koma með einhverja lausn sem á að sefa áhyggjur fólks en gerir það engan veginn. Forsætisráðherra sagði áðan, í svari sínu við mig, að hún teldi mikilvægt að rannsaka bankasöluna til hlítar og þess vegna væri búið að fá ríkisendurskoðanda og Seðlabankann til að rannsaka málið. (Gripið fram í.) Seðlabankinn ákvað það sjálfur, afsakið. En við vitum alveg af sögunni að ríkisendurskoðandi hefur ekki þau verkfæri sem þarf til. (Forseti hringir.) Og Seðlabankinn eða Fjármálaeftirlitið hefur enga skyldu til þess að upplýsa almenning. Rannsóknarnefndin (Forseti hringir.) snýst líka einmitt um að leiða fram pólitíska ábyrgð og tengja alla strengi sem þarf til þess að fá heildarmyndina. (Forseti hringir.) Þess vegna er þessi krafa áfram uppi um að við þurfum rannsóknarnefnd til að rannsaka þetta til hlítar.
(Forseti (OH): Forseti vill minna hv. þingmenn á að virða ræðutímann.)