um fundarstjórn.
Frú forseti. Mér var dálítið brugðið eftir orðaskipti hv. þm. Sigmars Guðmundssonar við hæstv. forsætisráðherra. Í fyrra svari sínu beitir forsætisráðherra fyrir sig orðhengilshætti og talar um að hvergi hafi verið minnst á ríkisstjórnarfund. Þegar hv. þingmaður les þetta svo upp og sýnir fram á að það stendur skýrum stöfum að ríkisstjórnin hafi ákveðið að leggja Bankasýsluna niður út af tilteknu máli og engir fundir hafi verið haldnir til að ákveða það þá svaraði hæstv. forsætisráðherra því þannig að þau væru oddvitar ríkisstjórnarinnar og töluðu fyrir hönd hennar. Ég átti ekki von á því og hugurinn hvarflaði aftur á 17. öld, til Loðvíks 14., þegar ég hlustaði á hæstv. forsætisráðherra tala. En hann sagði. Ríkið, það er ég.