152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:27]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Virðulegi forseti. Mig langaði að koma hérna upp og vekja athygli á mjög alvarlegri stöðu sem er að hv. fjárlaganefnd gat ekki haldið fund í morgun með Bankasýslu ríkisins þrátt fyrir að við séum að fara að ræða um alvarlegt mál, um sölu á hluta ríkisins í Íslandsbanka. Ríkisstjórnin og forsvarsmenn Bankasýslunnar hafa rætt um að allt eigi að vera uppi á borðum, ekkert sé að fela. Viðkomandi forsvarsmenn stofnunarinnar hafa haft þrjár vikur tæpar til að undirbúa minnisblað með spurningum frá hv. fjárlaganefnd. Þeir hafa vitað af þessum fundi í þrjár vikur og kvöldið áður hringja þeir í formann fjárlaganefndar og segja henni að þeir ætli ekki að mæta vegna þess að minnisblaðið sé ekki tilbúið. Þetta eru sömu aðilar og hafa getað tjáð sig frjálst og með frekar óheftum hætti hingað til um hversu stórkostlega þetta útboð hafi tekist, en núna treysta þeir sér ekki til að mæta af því að minnisblaðið er ekki tilbúið. Ég bara spyr: Hver er eiginlega að vinna að þessu minnisblaði og er verið að bíða eftir einhverjum yfirlestri á því blaði?