um fundarstjórn.
Frú forseti. Ég kem hér upp til að bera af mér sakir. Hæstv. forsætisráðherra sagði, með leyfi forseta:
„Ég sá hv. þingflokksformann Samfylkingarinnar gefa til kynna að hér hafi lög verið brotin, þar sem það var orðað að forsætisráðherra ætti að sæta ráðherraábyrgð og fara fyrir landsdóm.“
Það sagði ég bara alls ekki. Ég sagði, með leyfi forseta:
„Forsætisráðherra vill að við vöndum okkur, hlaupum ekki til og drögum ályktanir umfram þau gögn sem við höfum, en gera verður þá kröfu að gaslýsing sé ekki viðhöfð gagnvart þeim sem gagnrýna þessa sölu. Þá hljótum við að gera þá kröfu að forsætisráðherra fari eftir skýru ákvæði 17. gr. stjórnarskrár um að haldinn sé ríkisstjórnarfundur um mikilvæg stjórnarmálefni, en landsdómur dæmdi þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, fyrir brot á einmitt þessu ákvæði í aðdraganda bankahrunsins 2008. Það er ekki hægt að komast undan þessari skyldu með því að segjast hafa haldið fund ef hann var ekki haldinn. Ríkisstjórn er ekki þrír ráðherrar heldur ríkisstjórnin öll. Við hljótum að vera sammála um það.“
Frú forseti. Það er verið að halda því fram að það hafi verið haldnir ríkisstjórnarfundir um þetta, að það hafi verið ríkisstjórnin öll sem fjallaði um þetta. Tilkynningin um niðurlagningu (Forseti hringir.) kom 19. apríl. Ríkisstjórnarfundur þar sem þetta mál er á dagskrá er (Forseti hringir.) haldinn 22. apríl, nokkrum dögum seinna. [Orðaskipti í þingsal.] Mér sýnist hæstv. ráðherra ekki hafa nokkurn snefil af sómakennd eða áhyggjur af því að hér sé verið að fremja lögbrot.