um fundarstjórn.
Frú forseti. Já, gagnsæi. Hæstv. forsætisráðherra ræddi um gagnsæi hérna áðan og ég velti því fyrir mér, ef ríkisstjórnin vill auka traust almennings og fá allar hliðar á málinu, af hverju ekki að skipa rannsóknarnefnd? Ég skil ekki alveg rökin fyrir því. Viljum við ekki sjá allar hliðar á málinu? Viljum við ekki fá mismunandi fólk sem kemur að og sér mismunandi áherslur sem voru lagðar og hvers vegna ákvarðanir voru teknar? Mér finnst skrýtið að ræða um gagnsæi og tryggja ekki að farnar séu allar leiðir til að auka traust á Alþingi og traust á ríkisstjórninni.