152. löggjafarþing — 68. fundur,  25. apr. 2022.

um fundarstjórn.

[16:33]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf):

Virðulegur forseti. Mig langar að vekja athygli á einu. Það er hugtakanotkunin sem hefur átt sér stað á þessum fundi hérna. Hæstv. forsætisráðherra talaði um hæfa fjárfesta. Í þessu lokaða útboði var þess krafist að það yrðu fagfjárfestar. Það eina sem það felur í sér er að þeir eiga að geta metið áhættu á markaði. Það er ekkert sem segir að þeir séu hæfir til að kaupa banka. Einum fagfjárfesti var selt fyrir 1.100 þús. kr. Almenningur fékk að kaupa fyrir milljón. Svo er verið að nota hér slagorð eins og fagfjárfesta og hæfa fjárfesta sem höfðu nákvæmlega ekkert um málið að segja og að forsætisráðherra skuli koma hérna upp og segja: Þetta voru hæfir fjárfestar — það er bara rangt. Það er einfaldlega rangt. Annað sem mig langar að koma að er virðingarleysið gagnvart fjárlaganefnd, sem ég sit í og var tilefni þessarar umræðu núna. Það er með algerum ólíkindum hjá Bankasýslu ríkisins, algerlega með ólíkindum. Ég hélt í gærkvöldi að ég væri að koma á opinn fund með Bankasýslu ríkisins. En nei, stjórnarformaður Bankasýslunnar neitar að mæta. Það er virðingarleysi gagnvart Alþingi og virðingarleysi gagnvart (Forseti hringir.) eftirlitshlutverki Alþingis hjá ríkisstofnun. (Forseti hringir.) Þetta virðingarleysi, það þarf að gera eitthvað í því, t.d. setja boðunarvald þannig að (Forseti hringir.) Alþingi geti boðað fólk á fund og það hlýði þeirri boðun.