um fundarstjórn.
Frú forseti. Við hljótum að gera verulegar athugasemdir við það hvernig hæstv. fjármálaráðherra nálgast sannleikann hér úr ræðustól Alþingis Hann heldur langa ræðu um einhverja fyrirætlun stjórnarandstöðunnar um landsdóm og segir menn síðan bara vera með eitthvert þvaður. Hann býr til strámann, rífst við strámanninn og segir svo þvaður. Þetta er ekki boðlegt. Það eina sem stjórnarandstaðan er að benda á er að formið á æðstu stjórn ríkisins skiptir máli. Það að taka ákvarðanir með lögformlegum hætti á fundi með réttum hætti skiptir máli. Um þetta hafa vissulega fallið dómar en það er ekki þar með sagt að menn séu að kalla eftir einhverju slíku fyrirkomulagi. Menn eru bara að benda á alvarleikann í því að fara ekki eftir því sem á að gera þegar menn eru að taka risavaxnar ákvarðanir í æðstu stjórn ríkisins. Það er bara ofureinfaldlega það sem við erum að benda á. Það þýðir ekkert að vera að rífast við stjórnarandstöðuna um einhvern landsdóm. Það er enginn að tala á þeim nótum. Við erum bara benda á að ríkisstjórnin þarf að fara að lögum. (Forseti hringir.) Hún þarf að fara eftir stjórnarskrá. Hún verður að gera hlutina kórrétt því að annars hrynur allt kerfið.